ollrætí
Sunnudagur, 14. september 2008
jæja, þá er ég búin að fá internetið hingað heim eftir langann og flókinn tíma. næsta skref verður að fá síma sem hringir...
fyrsta alvöru vinnuvikan byrjar á morgun, og verður áhugavert að sjá hvernig til tekst.
annars verð ég að monta mig yfir leigusölunum mínum...þau eru bókstaflega mest æðislegustu manneskjur í öllum heiminum. þau eru svo yndisleg og vilja allt fyrir mig gera. ég má negla!!! sumum finnst það kannski ekki merkilegt, en eftir að hafa búið á görðum of lengi þá er það himnasending að mega negla í veggina :) svo ætlar Þorleifur að setja upp bjöllu við útidyrnar og í dag setti hann upp hitamæli við eldhúsgluggann, svo ég gæti nú séð hvernig ég ætti að klæða mig á morgnana ;P
bleh...er voða andlaus...og held ég fari nú bara að sofa...ég vil vera fersk í vinnunni á morgun :P
Athugasemdir
til hamingju beibí....nú skal sko dinggglað og neglað
ings (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.